Staða ríkisfjármála Íslands góð í alþjóðlegum samanburði 23. apríl 2013 11:13
Frumjöfnuður hins opinbera á Íslandi verður 2,5% af landsframleiðslu (VLF) í ár og hefur batnað um 9% af landsframleiðslu frá árinu 2009. Þetta er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), en á vorfundi sjóðsins í Washington um helgina var kynnt skýrsla um stöðu opinberra fjármála í aðildarríkjum hans. Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að AGS skoðaði stöðuna í ár í 30 þróuðum ríkjum, m.a. frumjöfnuð, sem er jöfnuður tekna og gjalda að fjármagnstekjum og –gjöldum undanskildum. Aðeins í þremur ríkjanna er frumjöfnuður hærra hlutfall af landsframleiðslu en hér á landi: Í Noregi, Singapore og á Ítalíu. Af öðrum ríkjum með jákvæðan frumjöfnuð má nefna Þýskaland, þar sem hann verður 1,8% af landsframleiðslu. Frumjöfnuður ríkjanna 30 er að meðaltali -3,0% af landsframleiðslu. Í Japan verður hann -9.0% af landsframleiðslu og -5,0% í Bretlandi. Í Bandaríkjunum er þessi tala -4,6%. Svíþjóð, Finnland og Danmörk verða öll með neikvæðan frumjöfnuð á árinu. AGS skoðar einnig heildarjöfnuð ríkjanna, en heildarjöfnuður er mismunur á heildartekjum og heildargjöldum. Sjóðurinn metur stöðuna á Íslandi þannig að heildarjöfnuður hér á landi verði neikvæður um sem nemur 1,3% af VLF. Af löndunum 30 eru aðeins sex með jákvæðan heildarjöfnuð, sem þýðir að hið opinbera tekur til sín fjármuni úr hagkerfum þessara landa. Annars staðar bætir opinberi geirinn inn í hagkerfin. Meðaltalið er 4,7% af landsframleiðslu ríkjanna 30. Hlutfallslega er innspýtingin mest í Japan, 9,8% af landsframleiðslu, en í Bretlandi er heildarjöfnuður neikvæður um 7% og um 6,5% í Bandaríkjunum. AGS metur brúttóskuldir ríkjanna 30 sem 109% af landsframleiðslu þeirra í ár. Á þennan mælikvarða er Ísland með 91,9% brúttóskulda af landsframleiðslu. Allmörg ríki eru þó með hærri brúttóskuldir hins opinbera. Þar má nefna Japan með 245%, Grikkland með 179%, Ítalíu með 131% og Írland og Portúgal með 122%. Í Bandaríkjunum er skuldahlutfallið 108% af landsframleiðslu og 93,6% í Bretlandi.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira