Viðskipti innlent

Velta með atvinnuhúsnæði yfir 8,6 milljarðar í mars

Í mars s.l. var 62 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 65 utan þess.

Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var rúmlega 7,4 milljarðar kr. en rúmlega 1,2 milljarðar kr. utan þess eða samtals rúmlega 8,6 milljarðar kr. Í sama mánuði í fyrra var veltan samtals tæplega 6,8 milljarðar kr.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að af þessum samningum voru 26 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×