Töluverð viðskipti með hluti í VÍS, hafa hækkað um 15% 24. apríl 2013 11:15
Viðskipti með hlutabréf í VÍS hafa verið töluverð á morgni fyrsta viðskiptadags félagsins. Gengi félagsins stendur í 9,15 kr. á hlut sem er 15% hærra en gengi félagsins í A og B hluta útboðsins en það var 7,95 kr. á hlut. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ein flöggun kom í morgun vegna eignarhalds þegar tilkynnt var um 9,9% hlut Hagamels ehf. Í VÍS. Þegar þetta er skrifað er því einungis einn annar hluthafi en Klakki ehf. með meira en 5% hlut í félaginu. Listi yfir stærstu eigendur VÍS hefur ekki verið birtur en gera má ráð fyrir því að hann verði birtur síðar í dag. "Athyglisvert verður að skoða hlutdeild lífeyrissjóðanna í VÍS en fyrir liggur að enginn lífeyrissjóður á umfram 5% hlut í félaginu eftir útboð, til samanburðar eiga þrír lífeyrissjóðir meira en 5% hlut í TM og lífeyrissjóðirnir eiga töluverðan hluta í Sjóvá í gegnum SF1,” segir í Morgunkorninu. „Spurningin er hvort lífeyrissjóðirnir muni kjósa að eiga í öllum tryggingafélögunum eða veðji á ákveðinn hest. Þess fyrir utan er þó nauðsynlegt að líta til þess að seljendur VÍS höfðu fulla heimild til að velja eigendahóp félagsins, miðað við eðli starfsemi Klakka ehf. er þó líklegt að það val hafi að fullu byggst á verði. Í ljósi þeirra viðskipta sem verið hafa í dag er nauðsynlegt að hafa í huga að sá hluthafalisti sem birtur verður getur nú þegar hafa tekið töluverðum breytingum.”
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira