Eimskip semur um verðlækkun á tveimur skipum í Kína 26. apríl 2013 12:19
Eimskip hefur samið við skipasmíðastöð í Kína um verðlækkun á tveimur skipum sem þar eru í smíðum fyrir félagið. Alls mun verð þeirra lækka um 10 milljónir dollara eða tæplega 1,2 milljarða kr. Í tilkynningu segir að á árinu 2011 samdi Eimskip við skipasmíðastöð Rongcheng Shenfei í Kína um smíði á tveim gámaskipum. Skipin eru hvort um sig 875 gámaeiningar að stærð, þar af með tengla fyrir 230 frystigáma. Burðargeta skipanna er um 12 þúsund tonn, lengd 140,7 metrar og breidd 23,2 metrar. Upphaflega var gert ráð fyrir að skipin yrðu afhent á þessu ári. Nú liggur fyrir samkomulag við skipasmíðastöðina um að afhending á skipunum verði á fyrri hluta árs 2014. Jafnframt því að semja um seinkun á afhendingu hefur félagið samið um rúmlega 20% lækkun á samningsverði skipanna og nemur lækkunin 10 milljónum dollara samtals fyrir bæði skipin. Félagið hefur að teknu tilliti til lækkunar á verði skipanna greitt um 26 milljónir dollara eða sem nemur um 70% af uppfærðu samningsverði. Fjárfestingin er fjármögnuð með eigin fé og brúarláni frá innlendum banka á byggingartímanum og með langtímafjármögnun frá erlendum banka. Í mars 2013 kynnti félagið umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi sínu. Seinkunin á afhendingu skipana mun ekki hafa áhrif á þær breytingar eða þjónustu við viðskiptavini félagsins. Seinkunin mun þó hafa í för með sér áframhaldandi leigu á skipum lengur en gert hafði verið ráð fyrir. „Það er ánægjulegt að hafa náð fram lækkun á kaupverði skipanna í tengslum við tafir á afhendingu þeirra sem nemur um 1,2 milljörðum íslenskra króna. Það verður gaman að taka á móti nýju skipunum á 100 ára afmælisári félagsins 2014. Þrátt fyrir tafir á afhendingu skipanna þá verða engar breytingar á nýju siglingakerfi félagsins og mun þetta ekki hafa áhrif á þjónustu félagsins við viðskiptavini. Það er einnig gott að finna fyrir því trausti sem Eimskip hefur áunnið sér frá hendi erlendra fjármálastofnana við fjármögnun verkefnisins, en félagið er með trygga langtímafjármögnun vegna nýsmíðinnar," segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips í tilkynningunni.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira