Valitor fær 500 milljóna króna sekt Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. apríl 2013 15:03 Viðar Þorkelsson forstjóri Valitors.
Samkeppniseftirlitið lagði í dag 500 milljóna króna sekt á Valitor fyrir alvarleg brot á samkeppnislögum. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem birt er í dag, er komist að þeirri niðurstöðu að Valitor hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Einnig braut Valitor gegn skilyrðum sem fyrirtækið hafði skuldbundið sig til þess að virða. Mál þetta varðar markaðinn fyrir færsluhirðingu, en það er þjónusta við söluaðila, til dæmis verslanir, með því að veita þeim heimild til að taka við greiðslum með greiðslukortum, taka við færslum þeirra og greiða þeim út þegar korthafar greiða reikninga sína. Valitor er markaðsráðandi á þessum markaði og einnig starfa á markaðnum Borgun hf. og Kortaþjónustan. Samkeppniseftirlitið segir að Valitor hafi gengist undir sátt Í lok árs 2007 og Valitor hafi meðal annars viðurkennt víðtæk brot á samkeppnislögum og samþykkt að greiða stjórnvaldssekt sem nam 385 milljónum króna. Einnig féllst Valitor á að hlíta skilyrðum sem ætlað var meðal annars að koma í veg fyrir að fyrirtækið myndi á ný misnota markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem ætlað var að valda keppinauti samkeppnislegu tjóni. Lauk þessu máli endanlega í upphafi árs 2008. Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar kæru Borgunar og nokkrar ábendingar vegna háttsemi Valitors á markaði fyrir færsluhirðingu. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt er í dag kemur fram Valitor hafi brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði samþykkt að hlíta í sáttinni frá 2007. Í því fólst m.a. að Valitor misnotaði trúnaðarupplýsingar um keppinauta sína í færsluhirðingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslukorta hér á landi. Segir Samkeppniseftirlitð að þessi hafi verið viðbrögð við alvarlegum brotum Valitors og því sett til að vinna gegn frekari brotum fyrirtækisins. Það sé í eðli sínu afar alvarlegt að fyrirtæki brjóti skilyrði af þessum toga sem það hefur skuldbundið sig til þess að virða. Í yfirlýsingu frá Valitor er ásökunum Samkeppniseftirlitsins hafnað. Þá segir að Samkeppniseftirlitið sé ekki óskeikult í sínum niðurstöðum. Þannig hafi Valitor í tvígang þurft að leita á náðir dómstóla í tengslum við þetta mál og í bæði skiptin hafi Hæstiréttur úrskurðað Valitor í vil.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira