Hagvaxtarspá AGS mun svartsýnni en spá Seðlabankans 17. apríl 2013 10:33
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) spáir því að hagvöxtur hér á landi verði hægur á næstunni, eða 1,9% í ár og 2,1% á næsta ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að spá AGS fyrir hagvöxt hér á landi í ár er í takti við nýútkomna spá Hagstofnunnar, en þeir spá líka 1,9% hagvexti. AGS er hins vegar nokkuð svartsýnni á næsta ár, en Hagstofan spáir þá 2,7% hagvexti. Spá AGS er aftur á móti umtalsvert svartsýnni á hagvöxtinn hér á landi á næstunni en Seðlabankinn sem í sinni nýjustu spá, sem kom út í febrúar síðastliðnum, gerði ráð fyrir að hagvöxturinn í ár yrði 2,1% og 3,7% á næsta ári. Munurinn liggur væntanlega að verulegu leyti í mismunandi spám fyrir fjárfestingu. AGS spáir því að fjárfestingarstigið á Íslandi verði áfram lágt. Spá þeir því að fjárfesting muni nema tæpum 15% af landsframleiðslu á þessu ári en 16% árið 2014. Í Morgunkorninu segir einnig að þrátt fyrir hægan vöxt reiknar AGS með því að hann verði nægur til að enn dragi úr atvinnuleysi. Spáir stofnunin því að atvinnuleysið verði 5,0% í ár og 4,6% á næsta ári. Reikna þeir með því að verðbólgan verði áfram há, eða 4,7% í ár og 4,0% á næsta ári. Kemur þetta fram í efnahagspá þeirra fyrir heiminn sem birt var í gær. Þrátt fyrir að hagvöxtur verði hér hægur á næstunni mun hann verða nokkuð meiri að mati AGS en að meðaltali í nálægum löndum. Þannig spáir stofnunin því að 0,3% samdráttur verði á evrusvæðinu í ár og að hagvöxtur næsta árs verði þar einungis 1,1%. Þá spáir stofnunin því að hagvöxtur í Bretlandi verði 0,7% í ár og 1,5% á næsta ári. Öllu meiri hagvexti spá þeir hins vegar í Bandaríkjunum eða 1,9% í ár og 3,0% á næsta ári.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira