Ölgerðin veitir 100 milljónum til 100 samfélagsverkefna 17. apríl 2013 12:45 Svanhildur Sigurðardóttir, samfélags – og samskiptastjóri, Októ Einarsson, stjórnarformaður, Andri Þór Guðmundsson forstjóri, og Stefán Pálsson sagnfræðingur. Mynd/ María Kjartansdóttir
Ölgerð Egils Skallagrímssonar fagnar því í dag að 100 ár eru frá því að Tómas Tómasson stofnaði fyrirtækið í kjallara Þórshamars við Templarasund. Á þessum tímamótum mun fyrirtækið veita 100 milljónum króna til 100 samfélagsverkefna. Í tilkynningu segir að fyrirtækið var í fyrstu starfrækt í tveimur herbergjum í kjallara hússins, sem Alþingi á í dag, en er nú í 20.000 fermetra húsnæði við Grjótháls. Það voru Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar og Andri Þór Guðmundsson, forstjóri, sem greindu frá því að fyrirtækið ætlaði að beita sér sérstaklega í ýmsum samfélagsverkefnum á afmælisárinu. „Ölgerðin er rótgróið fyrirtæki sem hefur frá upphafi lagt áherslu á að vera í góðu sambandi við þjóðina og að við viljum gefa af okkur og þakka þjóðinni þannig samfylgdina síðustu 100 árin," segir Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar í tilkynningunni. „Við störfum af ábyrgð og það er hluti af okkar starfi að sinna samfélaginu og þakka fyrir okkur með því að gefa til baka. Á afmælisárinu munum við vinna að 100 verkefnum sem snúa að ábyrgð okkar gagnvart samfélaginu og veitum 100 milljónum króna í margvísleg verkefni," segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. Ölgerðin hefur í 100 ár stutt dyggilega við ýmis samfélagsverkefni og veitt tugi milljóna króna árlega í alls kyns verkefni en ætlar nú að vinna markvissar en áður. Verkefnum verður skipt í fjóra flokka og verður árangur nú mældur og gefinn út opinberlega á hverju ári í samræmi við skilmála Global Compact verkefnis Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira