Valka hlaut Nýsköpunarverðlaunin í ár 18. apríl 2013 12:16
Fyrirtækið Valka hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2013 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun, en Valka er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á tækjum og hugbúnaði fyrir fiskvinnslu. Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku veitti verðlaununum viðtöku. Í tilkynningu segir að á Nýsköpunarþingi voru íslensk sprettfyrirtæki gerð að umfjöllunarefni og voru þrír fyrirlesarar fengnir til að segja frá hraðvaxta fyrirtækjum og stöðu íslenskra sprettfyrirtækja eða svokallaðra „gazella". Tæplega 300 manns sóttu þingið, sem haldið var á Grand hótel Reykjavík. Valka ehf. var stofnað árið 2003 af Helga Hjálmarssyni verkfræðingi sem er jafnframt framkvæmdarstjóri fyrirtækisins en þar starfa nú 18 manns við tækjahönnun, hugbúnaðargerð, framleiðslu og sölu. Valka er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á tækjum og hugbúnaði fyrir fiskvinnslu. Valka býður margs konar lausnir og búnað allt frá stökum vogum, innmötunarvélum og flokkurum til flæði- og skurðarlína og pökkunarkerfa. RapidFish hugbúnaður Völku er einfalt en öflugt framleiðslustjórnar- og pantanakerfi fyrir fiskvinnslur og sölufyrirtæki. Fyrirtækið hlaut viðurkenningu á Íslensku sjávarútvegssýningunni fyrir Aligner flokkarann sem flokkar og leggur flök og bita sjálfvirkt í kassa og á árinu 2011 seldi Valka svo flokkunarbúnað og pökkunarlínu fyrir heilan lax til Noregs og er það jafnframt stærsta einstaka sala fyrirtækisins, en verðmæti verkefnisins nam um 400 milljónum íslenskra króna. Öll samsetning á tækjum Völku fer fram innanhúss en aðkeypt smíði er að mestu leyti unnin af íslenskum verktökum.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira