Hvetja Seðlabankann til gjaldeyriskaupa á millibankamarkaðinum 19. apríl 2013 12:27
Greining Íslandsbanka hvetur Seðlabankann til að hefja að nýju gjaldeyriskaup á millibankamarkaðinum með gjaldeyri. Nú sé lag til þess í ljósi mikillar styrkingar á gengi krónunnar frá áramótum. Greining Arion banka hefur hvatt til þess sama í Markaðspunktum sínum þar sem spurt var nýlega hvort Seðlabankinn væri sofandi fyrir þessum möguleika. Í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka segir að Seðlabankinn ákvað í upphafi árs að auka áherslu á beitingu gjaldeyrisforða bankans í því skyni að draga úr gengissveiflum og styðja þar með við peningastefnuna. Í því skyni hætti bankinn reglulegum gjaldeyriskaupum og hefur einnig selt u.þ.b. 77 milljónir evra með beinum og óbeinum hætti á gjaldeyrismarkaði frá gamlaársdegi á síðasta ári í því skyni að styðja við gengi krónu. „Í ljósi mikillar styrkingar krónu síðustu mánuði, framangreinds markmiðs um að draga úr gengissveiflum og þess hversu gjaldeyrisforði bankans er skuldsettur hlýtur hann nú að huga að því að hefja regluleg gjaldeyriskaup að nýju,“ segir í Morgunkorninu. „Má þar nefna að ef bankinn tekur á ný að kaupa 3 m. evra í viku hverri á markaði tekur það hann hálft ár að afla til baka þess gjaldeyris sem ráðstafað var í framangreindum aðgerðum.“ Þá segir að raunar væri það ráðlegt fyrir Seðlabankann að kaupa enn meiri gjaldeyri í sumar ef þróunin verður með líkum hætti í fyrra, en bankinn gerði að mati greiningarinnar mistök í því að vera ekki stórtækari í gjaldeyriskaupum þegar hin skammvinna styrking krónu stóð yfir í frá júlíbyrjun fram í miðjan ágúst á síðasta ári. „Þar sem gengi krónu er nú á svipuðum slóðum og þegar hæst hóaði í fyrra er ekki eftir neinu að bíða fyrir bankann, enda eru honum hæg heimatökin að slaka á kaupunum af nýju ef bakslag verður í gengisþróun krónu á næstunni,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent