Ferðaárið fer af stað með látum - aldrei fleiri ferðamenn í byrjun árs 2. apríl 2013 10:34 Ferðamenn í klassísku íslensku veðri.
Aldrei hafa fleiri erlendir ferðamenn sótt landið heim á fyrstu tveimur mánuðum ársins en nú í ár samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Það er því óhætt er að segja að árið 2013 hafi farið af stað með miklum látum, en þannig eru brottfarir erlendra ferðamanna komnar upp í 74.000 á fyrstu tveimur mánuðunum samanborið við 54.100 á sama tímabili í fyrra, sem jafngildir fjölgun upp á 36% milli ára. Frá því að Ferðamálastofa hóf talningar hafa brottfarir erlendra ferðamanna ávallt verið mun fleiri í mars en í febrúar, og er því líklegra en ekki að raunin verði sú í ár, sem gerir mars síðastliðinn að fjölmennasta marsmánuði frá upphafi. Í mars í fyrra fóru 33.600 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð. Telja má líklegt að Ferðamálastofa muni birta í vikunni tölur fyrir marsmánuð um brottfarir gesta frá landinu um Leifsstöð. Tölur Ferðamálastofu ná einnig til brottfara Íslendinga um Leifsstöð. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins hafa aðeins færri Íslendingar haldið erlendis en á sama tímabili í fyrra. Nemur fækkunin á milli ára rúmu 1%. Áhugavert verður að sjá hvort einhver viðsnúningur verði á þessari þróun á næstu mánuðum, en ef marka má vísitölu Capacent Gallup um fyrirhugaðar utanlandsferðir nú í mars þá hefur fjölgað að nýju í hópi þeirra Íslendinga sem hafa í huga að leggja land undir fót á næstunni. Verður því fróðlegt að sjá hvernig þróunin hefur verið nú í mars, en í mars í fyrra námu brottfarir Íslendinga um Leifsstöð 26.500.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira