Seðlabankinn heldur óbreyttum stýrivöxtum 20. mars 2013 09:02
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 6%. Þetta er í samræmi við væntingar og spár sérfræðinga. Í tilkynningu segir að fyrstu mælingar á hagvexti síðasta árs sýna minni vöxt en spáð var í febrúar síðastliðnum. Hagvöxtur á árinu 2011 hefur aftur á móti verið endurmetinn til hækkunar. Áfram eru horfur á hægum efnahagsbata og eru leiðandi vísbendingar af vinnumarkaði í samræmi við það. Verðbólga reyndist hins vegar töluvert meiri í febrúar en reiknað hafði verið með. Á móti vegur hækkun á gengi krónunnar frá því í febrúar. Ákvörðun Seðlabankans um að hætta um hríð reglubundnum kaupum gjaldeyris og styðja við gengi krónunnar með inngripum á gjaldeyrismarkaði hefur, ásamt öðrum aðgerðum, reynst árangursrík. Aðgerðir bankans hafa dregið úr hættu á að sjálfuppfylltar væntingar um lækkun gengis veiki krónuna enn frekar og hafa þær þannig stutt við peningastefnuna. Þótt heldur hafi hægt á efnahagsbatanum um sinn heldur slakinn í þjóðarbúskapnum áfram að minnka. Laust taumhald peningastefnunnar styður við efnahagsbatann. Minnki verðbólga hægar en áður var spáð þarf að draga úr slaka peningastefnunnar fyrr en ella. Áfram gildir að eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti aðlögunin á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, sem ræðst að miklu leyti af þróun gengis krónunnar og launaákvörðunum á komandi misserum.
Mest lesið Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Fleiri fréttir „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Sjá meira