Viðskipti innlent

Byggingarkostnaður stendur í stað

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2013 er 118,7 stig sem er engin breyting frá fyrri mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að verð á innfluttu efni lækkaði um 0,6% (áhrif á vísitölu -0,2%) en verð á innlendu efni hækkaði um 0,2% (0,1%) og vinnuliðir hækkuðu jafnframt um 0,2% (0,1%). Vísitalan gildir í apríl 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×