Sérstakur saksóknari segir útilokað að skýringar Sigurjóns standist Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. mars 2013 10:42 Sigurjón Þ. Árnason var bankastjóri Landsbankans. Mynd/ GVA.
Sérstakur saksóknari segir útilokað að Landsbankinn hafi getað verið viðskiptavaki í eigin hlutabréfum enda myndi slíkt fyrirkomulag augljóslega skapa hagsmunaárekstra og auka hættuna á markaðsmisnoktun. Sigurjón Þ. Árnason sagði í ítarlegu viðtali á Stöð 2 og Vísi í gær að viðskipti bankans með eigin fé hefðu verið stunduð frá því áður en hann hefði komið í bankann. Í raun hefði verið um viðskiptavaka að ræða. Þá þvertók hann fyrir að hann, eða aðrir starfsmenn Landsbankans, hefðu gert nokkuð rangt. Þannig svaraði hann ákæru sem sérstakur saksóknari gaf út á hendur honum og fimm öðrum fyrrverandi starfsmönnum Landsbankans fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik. Þessum skýringum Sigurjóns er hafnað í ákærunni. Þar segir að útgefandi hlutabréfa geti samið við annað verðbréfafyrirtæki um að taka að sér viðskiptavakt með hlutabréfin, það er að tryggja með kaupum og sölum á bréfunum að eðlilegt verð á þeim myndist á markaði Sérstakur saksóknari segir aftur á móti í ákærunni að Landsbankinn hafi tekið stórar stöður í hlutabréfum í Landsbankanum en viðskiptavakar leitist almennt við að mynda tvær hliðar á markaðnum. Landsbankinn hafi sett margfalt fleiri kauptilboð en sölutilboð í hlutabréf í Landsbankanum. Viðskiptavaki myndi hins vegar leitast við að aðlaga tilboð sín þar til jafnvægi hafi náðst og það magn bréfa sem hann kaupi ætti að vera nokkurn veginn til jafns við það magn sem hann selur. Í ákærunni segir að netto kaup eiginfjárfestinga Landsbankans á hlutabréfum í Landsbankanum í lokunaruppboðum í Kauphöllinni og rétt fyrir lokunaruppboð hafi fjölmarga viðskiptadaga verið svo hátt hlutfall af heildarviðskiptum með hlutabréf í bankanum að háttsemi ákærðu hvern þessara viðskipta daga sé í eðli sínu sjálfstætt markaðsmisnotkunarbrot.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira