Um tíu innherjamál hafa verið til rannsóknar hjá saksóknara Magnús Halldórsson skrifar 12. mars 2013 13:55 Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Um tíu innherjamál hafa verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara, sem tengjast hruni fjármálakerfisins. Fjármálaeftirlitið kærði eða vísað 22 innherjamálum til embættisins er tengjast hruni fjármálakerfisins. Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi starfsmaður Glitnis, var í gær dæmdur í eins árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa selt hlutabréf sín, á grundvelli innherjaupplýsinga, á tímabilinu frá mars til september 2008. Samtals seldi hann bréf í Glitni sem voru virði tæplega 20 milljóna, og var meðal annars vitnað til þess í dómi Héraðsdóms Reykjaness, þar sem dómur var fjölskipaður, að Friðfinnur hefði búið yfir upplýsingum sem ekki voru aðgengilegar almenningi og markaðnum almennt, og því hefði honum verið óheimilt að selja hlutabréf sín. Í dómnum er sérstaklega tekið fram að ekki hafi verið ástæða til þess að skilorðsbinda refsinguna, vegna þeirra varnaðaráhrifa sem dómar í málum sem þessum þurfa að skapa. Þetta er aðeins annar dómurinn í Íslandssögunni þar sem maður er fundinn sekur um innherjasvik, en í hinu málinu var Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir að selja hlutabréf í Landsbankanum í september 2008, á grundvelli innherjaupplýsinga. Embætti sérstaks saksóknara er nú með um tíu innherjamál til rannsóknar, en ekki er útilokað að þeim fjölgi. Fjármálaeftirlitið kærði og vísaði 22 innhverjasvikamálum til embættisins, eftir hrunið, en rannsóknum eftirlitsins á málum er tengjast hruninu er nú lokið.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent