„Kokkurinn kom hlaupandi á móti okkur úr eldhúsinu“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 18. mars 2013 11:19 Veitingastaðurinn Vegamót er við Vegamótastíg. Mynd/Pjetur „
Fyrsti kokkurinn var nýmættur og var að kveikja undir hellum, fara að sjóða súpu og svona," segir Óli Már Ólason, eigandi veitingastaðarins Vegamót við Vegamótastíg, þar sem varð gassprenging í eldhúsi í morgun. „Þegar hann kveikti á einni hellunni stíflaðist ein gashellan, við vitum ekki ennþá af hverju, og það kom stór blossi og öll tækin í eldhúsinu færðust til." Óli var staddur á skrifstofu á efri hæð ásamt öðrum manni, en einn þjónn var einnig mættur til vinnu. „Við heyrum sprenginguna og hlaupum niður og þá kom kokkurinn hlaupandi á móti okkur út úr eldhúsinu. En hann slapp sem betur fer. Ég hljóp og ýtti á neyðarhnapp sem stoppar allt gas inn í húsið. Svo hlupum við bara út og hringdum á slökkviliðið." Segir Óli slökkviliðið hafa brugðist hratt við og verið komið örfáum mínútum síðar. Engar skemmdir hafi orðið en mönnum hafi vissulega verið brugðið. „Já okkur dauðbrá auðvitað. En það meiddist enginn," segir Óli, og reiknar með að ná að opna veitingahúsið innan skamms. „Við opnum vanalega klukkan 11 en náðum því ekki núna. Ætli við náum ekki að opna í hádeginu."
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira