Benni og Bílabúð Benna dæmd í Héraðsdómi Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. mars 2013 15:13 Benedikt Eyjólfsson var ósáttur við að þurfa að skila inn ársreikningum til ársreikningaskrár. Mynd/ GVA.
Benedikt Eyjólfsson, sem oftast er kenndur við Bílabúð Benna, hefur verið dæmdur til að greiða ásamt fyrirtæki sínu 750 þúsund króna sekt í ríkissjóð. Benedikt skilaði ekki ársreikningum til ársreikningaskrár fyrir árin 2006, 2007, 2008, 2009 og 2010, fyrr en of seint. Benedikt tók fram fyrir dómi að ársreikningar fyrirtækisins hefðu alltaf verið færðir lögum samkvæmt á því tímabili sem ákæra tók til og hafi þeim verið skilað með skattframtölum félagsins til ríkisskattstjóra. Jafnframt hefði félagið staðið skil á öllum sköttum og skyldum. Hins vegar hefði hann ekki sent ársreikningana til ársreikningaskrár eins og lög gera ráð fyrir. Hann kvaðst ósáttur við að vera skyldaður til þess að standa skil á ársreikningi til opinberrar birtingar. Með því væru upplýsingar um rekstur félagsins aðgengilegar samkeppnisaðilum á markaði, sem á þeim tíma sem um ræðir hefðu fyrst og fremst verið bankastofnanir. Kvaðst ákærði því hafa tekið ákvörðun um að skila ekki ársreikningum til ársreikningaskrár. Í dómnum kemur fram á ársreikningum var skilað til ársreikningaskrár eftir að gerðar voru athugasemidir við að þeim hafði ekki verið skilað. Þá er skýrt tekið fram í dómnum að Benedikt hefur aldrei áður gerst brotlegur við lög.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira