"Allt annað eru svívirðileg og grófustu svik í sögu Alþingis frá öndverðu" 9. mars 2013 12:25
Formaður lýðræðisvaktarinnar segir stöðu stjórnarskrármálsins á Alþingi makalausa og ekki eiga sér neitt fordæmi. Hann segir mikilvægt að vilji meirihluta Alþingis og þjóðarvilji nái fram að ganga fyrir kosningar, allt annað séu svívirðileg svik og þau grófustu í sögu Alþingis frá öndverðu. Fram hefur komið að Alþingi nær líklegast ekki að ljúka stjórnarskrármálinu fyrir komandi þingkosningar. Þetta hefur vakið hörð viðbrögð og verður efnt til útifundar á Ingólfstorgi í dag til að mótmæla þessari niðurstöðu. Þorvaldur Gylfason formaður Lýðræðisvaktarinnar og stjórnlagaráðsfulltrúi segir stöðu stjórnarskrármálsins ótrúlega. „Staða stjórnarskrármálsins á Alþingi er makalaus og á sér eiginlega ekkert fordæmi. Það liggur fyrir að 32 þingmenn af 63 hafa lýst því yfir opinberlega að þeir styðji stjórnarskrárfrumvarpið og vilji að það verði afgreitt á Alþingi fyrir þinglok. En samt virðist stefna í það að þinghaldi verði lokið áður en vilji þingmeirihlutans nær fram að ganga. Það er eins og forseti Alþingis ætli sér að slíta þinghaldinu og ganga þannig gegn þjóðarviljanum sem birtist svo skýrt í þjóðaratkvæðagreiðslu 20 október." Þorvaldur segir þessa stöðu minna helst á þjóðfundinn 1851. Þegar Trampe sleit fundinum með ofbeldi til að koma í veg fyrir að vilji þjóðfundarfulltrúa næði fram að ganga. Tímaskortur og aðrar afsakanir séu fyrirsláttur. „Þegar þingkosningar fóru fram 2009 þá hélt þingið áfram fram í miðjan apríl. Þannig að það er engin ástæða til að slíta þinginu um miðjan mars. Það eru fjórar til fimm vikur til stefnu." Frumvarpið liggi fyrir, búið sé að taka tillit til athugasemda frá Feneyjarnefndinni og því sé alþingi ekkert að vanbúnaði. Þorvaldur segir mikilvægt að vilji meirihluta Alþingis , sem liggi fyrir og þjóðarviljinn í stjórnarskrármálinu nái fram að ganga. „Allt annað eru svívirðileg og grófustu svik í sögu Alþingis frá öndverðu. "
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Fleiri fréttir Parísarhjól sprettur upp við höfnina Virðast ætla að opna Kringluna á þriðjudaginn Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Sjá meira