Viðskipti innlent

Íbúðaverð fer lækkandi í borginni

Íbúðaverð fer nú lækkandi í borginni eftir samfelldar hækkanir undanfarið ár. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 350,7 stig í janúar s.l. og lækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,5%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,3%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×