Kæling fyrir tölvurými og skrifstofur 18. febrúar 2013 10:00 Sigurður Aðalsteinsson, sölustjóri hjá Rafstjórn, veitir ráðgjöf við uppsetningu og viðhald. Mynd/Anton
Rafstjórn ehf. býður uppsetningu og viðhald á hita-, loftræsti- og kælikerfum. Sífellt verður meiri þörf fyrir kælingu á tölvubúnaði á Íslandi. Flest íslensk fyrirtæki þurfa að fjárfesta í dýrum tölvu- og tæknibúnaði, sem gefa frá sér hita. Þessi búnaður er oft viðkvæmur og er ekki gerður til þess að þola hátt hitastig sem getur myndast í tölvurýmum.Rétt hitastig í tölvurýmum Mikilvægt er að viðhalda réttu hitastigi í tölvurýmum sem tryggir rekstraröryggi tölvukerfa. Það eykur líftíma tækjanna og getur lækkað rekstarkostnað tölvukerfis.Stulz-kælitæki Fyrirtækið Rafstjórn ehf. er sérhæft í uppsetningu og viðhaldi á hita-, loftræsti- og kælikerfum og hefur um árabil boðið upp á hágæða kælitæki frá Stulz í Þýskalandi fyrir tölvurými, skrifstofur, fundarsali og fleira. Kælitækin frá Stulz henta fyrir allar gerðir tölvurýma, allt frá minnstu rýmum til þeirra stærstu.Aðbúnaður starfsfólks Undanfarin misseri hefur sala aukist mjög í kælitækjum fyrir skrifstofur og fundarsali. Nú á tímum gerir fólk sífellt meiri kröfur um góðan aðbúnað á vinnustöðum. Fólk ver stórum hluta dagsins á vinnustað sínum og vill hafa þægilegt hitastig.Hljóðlát tæki Rafstjórn hefur boðið upp á sérstaklega hljóðlát tæki með fjarstýringu sem henta frábærlega á skrifstofur. Hægt er að snúa virkni tækisins við og láta það hita, sem getur komið sér vel á köldum vetrarmorgnum.Þjónusta Rafstjórn býður þá þjónustu að koma á staðinn, veita ráðgjöf og gera tilboð fyrirtækjum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar er að finna á rafstjorn.is.
Mest lesið Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira