Óbreytt staða á milli toppliða Keflavíkur og Snæfells Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2013 20:44 Pálína Gunnlaugsdóttir. Mynd/Daníel
Keflavík er áfram með fjögurra stiga forskot á Snæfell í baráttunni um deildarmeistaratitilinn í Dominos-deild kvenna í körfubolta en bæði lið unnu góða heimasigra í leikjum sínum í kvöld. Keflavík vann 28 stiga sigur á Grindavík, 86-58, en Keflavíkurliðið hafði í leiknum á undan tapað sínum fyrsta leik eftir sigur liðsins í bikarúrslitunum. Keflavíkurkonur kláruðu leikinn í þriðja leikhluta sem liðið vann 30-11 en staðan var 37-35 fyrir Keflavík í hálfleik. Jessica Jenkins skoraði 15 af 26 stigum sínum í þriðja leikhlutanum. Pálína Gunnlaugsdóttir var með 14 stig og 8 stoðsendingar en Crystal Smith skoraði mest fyrir Grindavík eða 18 stig. Snæfell vann sextán stiga sigur á Fjölni, 92-76, en Snæfellsliðið var búið að tapa þremur heimaleikjum í röð í deild og bikar. Fjölnisliðið komst átta stigum yfir í öðrum leikhluta, 33-25, en Snæfellskonur svöruðu þá með 14 stigum í röð og komust í 39-33. Snæfell var síðan 41-35 yfir í hálfleik og komið með níu stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 65-56. Hildur Sigurðardóttir var með 25 stig, 10 stoðsendingar og 7 fráköst fyrir Snæfell, Kieraah Marlow bætti við 26 stigum og 15 fráköstum og Alda leif Jónsdóttir var með 17 stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira