Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforðinn tæplega 532 milljarðar

Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam tæplega 532 milljörðum kr. í lok janúar og lækkaði um tæpa 8 milljarða kr. milli mánaða.

Hreinn gjaldeyrisforði, þ.e. erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtíma skuldum, nam um 473 milljörðum kr. í lok janúar, að því er segir í hagtölum Seðlabankans .

Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs á næstu 12 mánuðum eru áætlaðar um 59 milljarðar kr. miðað við í lok janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×