Viðskipti innlent

Fitch hækkar lánshæfismat Íslands

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur hækkað lánshæfismat Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB frá BBB- og staðfest lánshæfismatið BBB+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt.

Matsfyrirtækið hefur staðfest lánshæfismatið F3 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og hækkað landseinkunnina (e. Country Ceiling) í BBB frá BBB-. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar.

Þetta er í annað sinn sem Fitch hækkar lánshæfismat Íslands frá hruni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×