Vissi ekki af eignarhaldi Finns Ingólfssonar Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. febrúar 2013 12:30 Finnur Ingólfsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra Framsóknarflokksins. Ólafur Garðarsson segist aldrei hafa vitað af því að hann ætti hlut í fasteignaverkefnum sem Ólafur fór fyrir í Örfirisey.
Gift, félag sem stofnað var á grunni Samvinnutrygginga, lánaði félagi sem Finnur Ingólfsson var hluthafi í 840 milljónir króna á vormánuðum 2007. Ólafur Garðarsson, sem sat í slitastjórn Kaupþings þegar nauðasamningar við Gift voru gerðir, átti í nánum viðskiptum við Gift í gegnum þetta sama faseignafélag. Ólafur segist í dag ekki hafa haft hugmynd um eignarhlut Finns Ingólfssonar í umræddu félagi. Finnur Ingólfsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra Framsóknarflokksins og fyrrverandi seðlabankastjóri, átti hlut í félögunum Gómi ehf. og Lindberg ehf. og fengu þau 840 milljónir króna hjá fjárfestingarfélaginu Gift, en það er DV sem greinir frá þessu í dag í fréttaskýringu Inga Freys Vilhjálmssonar, blaðamanns. Gift tók lán hjá Kaupþingi og endurlánaði svo til fasteignaverkefnanna í Örfirisey, en félögin tvö, Gómur og Lindberg voru í eigu Ólafs Garðarssonar hæstaréttarlögmanns og Magnúsar Jónatanssonar, viðskiptafélaga hans. DV hefur undir höndum gögn sem sýna að Finnur Ingólfsson var hluthafi í Gómi í gegnum félag sitt, Hólmaslóð. Ómar Benediktsson, viðskiptafélagi Finns, kom fram fyrir hönd þess félags.Náin tengsl við Kaupþing og einstaka framsóknarmenn Gift var fjárfestingarfélag stofnað á grunni Samvinnutrygginga. Þetta félag, sem hafði náin pólitísk og viðskiptaleg tengsl við ýmsa framámenn í Framsóknarflokknum, stundaði áhættusamar fjárfestingar fyrir hrunið með fé tryggingartaka í Samvinnutryggingum. Viðskipti félagsins með hlutabréf í Kaupþingi banka eru nú til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Lítið hefur hins vegar frést af þeirri rannsókn frá því hún hófst árið 2010. Fall Giftar varð til þess að eigendur félagsins, venjulegt fólk sem var í viðskiptum við Samvinnutryggingar, fékk ekki tryggingareign sína sem gefin höfðu verið fyrirheit um. Almenningur tapaði peningum vegna áhættusækni manna sem sýsluðu með fé sem þeir áttu ekki. Gift fór í nauðasamninga, en ekki í gjaldþrotameðferð fyrir opnum tjöldum. Slit félagsins gengu snaggaralega fyrir sig áður en nauðasamningar voru samþykktir. Nauðasamningar eru í raun sátt um eftirgjöf krafna og eftir atvikum breytingu á kröfum í hlutafé. Stærsti kröfuhafi Giftar var þrotabú Kaupþings, en áðurnefndur Ólafur Garðarsson var formaður slitastjórnar banakns. Ólafur átti í viðskiptum við Gift eins og áður sagði. Gift hefði aldrei komist í gegnum nauðasamninga án samþykkis Kaupþings banka. Það var í raun algjör lykilforsenda. Ólafur Garðarsson segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis að hann hafi aldrei komið nálægt ákvörðunum um nauðasamninga „Ég skipti mér ekkert af málefnum Giftar og ég hef ekki átt í Gómi ehf. frá vorinu 2009," segir Ólafur.Þessi tenging við Gift. Af hverju að taka lán hjá gömlu Samvinnutryggingum? Af hverju ekki viðskiptabönkunum? „Árið 2007 fékk Gómur ehf. lán hjá Byr annars vegar og Gift hins vegar. Það var engin sérstök strategía á bak við það. Ástandið 2007 var þannig að það var víða hægt að fá lán, eins og alþjóð veit," segir Ólafur.Gat ég, eða aðrir Íslendingar, labbað inn í Gift og fengið lán? Var félagið með heimasíðu? „Ef þú varst með álitlegar fasteignir til kaups, væntanlega. Þetta var bara eitt af þessum fjárfestingarfélögum sem var að veita lán á þessum tíma. Það var ekkert feimnismál. Þetta var eins og hvert annað lán, gegn fasteignaveðum."Fannst þér ekki óviðeigandi að vera formaður slitastjórnar Kaupþings verandi með persónulega hagsmuni hjá Gift? „Ég seldi minn hlut í Gómi vorið 2009. Samt gætti ég þess að koma ekki að málefnum Giftar. Þrátt fyrir að ég ætti þar enga hagsmuni."Datt þér aldrei í hug að það yrði reynt að gera þetta tortryggilegt, þ.e veru þína í slitastjórn Kaupþings vegna náinna tengsla Giftar og Kaupþings og viðskipta þinna við Gift? „Nei." Ólafur var fyrst í stað í persónulegum ábyrgðum fyrir fasteignaverkefnunum í Örfirisey. Síðan losnaði hann undan þessum ábyrgðum þegar hann seldi hlut sinn í Gómi. „Mér vitanlega átti Finnur Ingólfsson aldrei neitt í þessu, heldur Ómar Benediktsson. Ég átti aldrei nein samskipti við Finn. Ég vissi aldrei til þess að Finnur ætti í hvorugu félagi," segir Ólafur. Í kjölfar hrunsins lentu Gómur og Lindberg í hremmingum. Gómur er gjaldþrota og Slitastjórn Sparisjóðabankans, áður Icebank leysti Lindberg til sín. Þá er Magnús Jónatansson í persónulegum gjaldþrotaskiptum, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Happy Hydrate seldi fyrir 302 milljónir Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Sjá meira