Íslandsbanki stefnir Stanford - vilja 74 milljónir til baka 4. febrúar 2013 11:06 Kevin Stanford enn í vandræðum eftir íslenska hrunið.
Íslandsbanki hefur stefnt breska tískukónginum Kevin Stanford en stefnan var birt í Lögbirtingablaðinu á dögunum þar sem ekki hefur tekist að birta honum stefnu þar sem heimilisfang hans er ókunnugt. Það er í raun BYR sem stefnir Stanford, en Íslandsbanki tók bankann yfir á síðasta ári. Þess er krafist að Stanford greiði 50 milljón króna skuldabréf sem var gefið út í september árið 2007. Greiða átti af láninu í nóvember árið 2009, ári eftir bankahrun. Þá átti hann að greiða um 64 milljónir í fimm greiðslum á 12 mánuðum. Stanford greiddi aldrei lánið og er því þess krafist að hann greiði nú rétt rúmar 74 milljónir króna vegna skuldabréfsins. Málið verður þingfest þann 13. mars 2013 í Héraðsdómi Reykjaness. Ef engin sátt næst í málinu fyrir þann tíma, eða Stanford mótmælir ekki málavöxtum með einhverjum hætti, má hann búast við útivistardómi svokölluðum, sem myndi þá líklega þýða að Íslandsbanki fær kröfu sína samþykkta. Stanford hefur átt í verulegum vandræðum eftir að hann sogaðist inn í góðærið hér á landi fyrir hrun. Árið 2009 blasti við honum gjaldþrot. Árið 2011 birti The Observer, sunnudagsblað The Guardian, ítarlega úttekt á viðskiptaferli Kevin Stanford. Þar kom fram að hann hefði náð að klóra í bakkann og héldi hluta af tískuveldi sínu, meðal annars All Saints tískukeðjunni. Stanford var áður í hópu auðugustu manna í breska tískugeiranum með auðæfi upp á 220 milljónir punda. Síðustu ár hefur hann ekki verið á lista. Fleiri íslenskir bankar, eða þrotabú þeirra öllu heldur, hafa einnig stefnt Stanford, svo sem Singer & Friedlander (KSF) sem var dótturbanki Kaupþings í Bretlandi.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira