Sérstakur saksóknari ákærir Bjarna Ármannsson Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. febrúar 2013 16:40 Bjarni Ármannsson fyrrverandi forstjóri Glitnis.
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka, hefur verið ákærður fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum. Hann er meðal annars ákærður fyrir að hafa ekki talið fram um 200 milljóna króna söluhagnað vegna sölu á hlutabréfum í eignarhaldsfélaginu Sjávarsýn í framtali fyrir árið 2006. Í ákæru kemur fram að alls séu vantaldar fjármagnstekjur tæpar 205 milljónir króna og vangreiddur fjármagnstekjuskattur rúmar 20 milljónir króna. Í yfirlýsingu sem Bjarni sendi fjölmiðlum síðdegis segir hann að meira en 90% af þeim skattstofni sem var vanframtalinn tengist viðskiptum milli félaga í sinni eigu sem síðar hafi verið sameinuð í eitt félag. Enginn ágreiningur sé um að gerð hafi verið mistök í skattframtalsgerðinni og hann hafi þegar greitt það sem var vanframtalið með tilheyrandi álagi skattyfirvalda. „Það kom mér verulega á óvart að málið færi í ákærumeðferð hjá sérstökum saksóknara, bæði vegna þess að ég leiðrétti mistökin sem voru gerð og gerði upp skattskuldina með viðeigandi álagi," segir Bjarni í yfirlýsingunni. Allt að sex ára fangelsi getur legið við umræddu broti.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira