Stýrivextir verða óbreyttir 6. febrúar 2013 08:59
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum í 6%. Þetta er í takt við spár sérfræðinga. Í tilkynningu segir að nýlegar hagtölur benda til þess að hagvöxtur í fyrra hafi verið minni en áður var talið og horfur eru á hægari hagvexti í ár en spáð var í nóvember. Fjöldi unninna stunda í þjóðarbúskapnum hefur aukist minna en spáð var. Þótt hægari vöxtur dragi nokkuð úr verðbólguþrýstingi þegar líða tekur á spátímabilið vegur þyngra framan af að spáin byggist á lægra gengi krónunnar en í nóvember. Verðbólguhorfur eru því í stórum dráttum svipaðar og þá. "Lakari viðskiptakjör hafa að undanförnu dregið úr afgangi vöru- og þjónustujafnaðar á sama tíma og þungi gjaldeyrissöfnunar vegna afborgana af erlendum lánum hefur verið mikill. Gengi krónunnar hefur því veikst. Töluverð óvissa er um hversu langvarandi þessi áhrif verða og þar með um þróun gengis á næstunni. Einnig er hætta á að sjálfuppfylltar væntingar um lækkun gengis veiki það enn frekar. Í ljósi þessara aðstæðna hefur Seðlabankinn ákveðið að hætta um hríð kaupum gjaldeyris og styðja við gengi krónunnar með inngripum á gjaldeyrismarkaði," segir í tilkynningunni. "Laust taumhald peningastefnunnar á undanförnum misserum hefur stutt við efnahagsbatann. Hækkun vaxta undanfarið 1½ ár og hjöðnun verðbólgu hafa dregið umtalsvert úr slaka peningastefnunnar. Eftir því sem slakinn hverfur úr þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að slaki peningastefnunnar hverfi einnig. Að hve miklu leyti aðlögunin á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar, sem ræðst að miklu leyti af þróun gengis krónunnar og launaákvörðunum á komandi misserum."
Mest lesið Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Sjá meira