Bílar

Aukning hjá Toyota í Evrópu

Nýr Toyota Auris rennur af færibandinu
Nýr Toyota Auris rennur af færibandinu
Salan í Rússlandi jókst um 27%

Þrátt fyrir dræma sölu bíla í Evrópu í fyrra jók Toyota og Lexus söluna frá 2011 um 2 prósent og seldi alls 837.969 bíla. Við það jókst markaðshlutdeild Toyota í álfunni úr 4,2% í 4,5%.

Toyota þakkar þessum árangri nýjum Yaris og ýmsum gerðum tvinnbíla (Hybrid) sem seldust mjög vel. Toyota telur að fyrirtækið muni selja enn fleiri bíla í Evrópu í ár þrátt fyrir ekkert alltof góðar spár um bílasölu í álfunni. Nýr Auris og sjö sæta Verso munu hjálpa þar mikið til, sem og fjórða kynslóð RAV 4 jepplingsins.

Sala Toyota í Bretlandi jókst um 12% en stóð í stað í Frakklandi. Hjá nágrönnum okkar Dönum jókst salan um 8%, en um heil 20% í Eystrasaltslöndunum. Salan í Rússlandi jókst um 27% og 13% í Úkraínu.

Ef sala Lexus er tekin sér jókst hún um 4,5% í Evrópu. Nýir GS og ES bílar spiluðu þar stóra rullu auk mikillar eftirspurnar eftir CT 200h og RX jeppunum, sem á sumum mörkuðum bjóðast aðeins sem tvinnbílar.

Sala Lexus í Rússlandi jókst um 14% og í Hollandi um heil 43%, þökk sé mikilli sölu á CT 200h bílnum. Stutt er í að Lexus kynni nýja kynslóð IS bílsins, sem mun þá einnig fást sem tvinnbíll. Í Evrópu eru 13% seldra bíla Toyota og Lexus tvinnbílar, en sama hlutfall í Hollandi er 45%. Ef Lexus bílar eru teknir sér, eru 90% seldra bíla tvinnbílar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×