Matur

Vægast sagt hressandi næringarbomba

Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Lifandi markaðar, gefur okkur uppskrift að hressandi þeytingi sem er stútfullur af ómissandi næringarefnum - algjörri vítamínsprengju.

Meistaradrykkur

170 ml ananassafi (ca. eitt glas)

6 klakar

1 skeið Fruit & Greens frá NOW

1 skeið Beepollen

1 msk. hörfræolía


1 sleif af mysuprótein -sett í þegar búið er að þeyta allt hitt saman



Sumum finnst gott að bæta við einni skeið af Maca dufti, þar sem duftið virðist hafa þann eiginleika að auka úthald og orku. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á að maca styður hormónajafnvægi og frjósemi fyrir konur jafnt sem karla.

Beepollin

Mörgum sem þjást af frjókornaofnæmi gæti þótt vafasamt að taka inn eitthvað sem inniheldur frjó. Á Íslandi eru það einkum þrjár gerðir frjókorna sem koma af stað ofnæmi; grasfrjó, birkifrjó og súrufrjó, allt vindfrævaðar plöntur, þ.e. frjóin berast með vindi. Skordýrafrævaðar plöntur eru oftast með litfögur blóm sem ilma til að laða skordýrin að sér. Þær mynda hins vegar fá frjókorn því þeirra aðferð við að dreifa frjókornum er mun markvissari en hjá vindfrævuðum plöntum. Frjókorn þeirra valda sjaldan ofnæmi og varla nema frjóhnapparnir séu hreinlega snertir. Þetta er frjóduftið sem býflugurnar safna saman og pakka inn í smákorn sem þær bæta hunangi og ensím við til að koma í veg fyrir gerjun og til að varðveita næringargildið.

Frjókornin hafa verið kölluð "hin fullkomna fæða" vegna þess að þau innihalda öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast. Frjókornin innihalda m.a.: Öll B-vítamín, C-vítamín, karótín, 22 amínósýrur, 28 steinefni, fjölómettaðar fitusýrur, ensím, náttúrulegt hormón og 35% prótein.

Eiginleikar þess eru ótvíræðir en þau:

. Styrkja ónæmiskerfið

. Styrkja taugakerfið

. Auka úthald og orku

. Fyrirbyggja ofnæmi

Það er gott að setja frjókornin út á jógúrt, múslí, í þeytinginn eða bara taka þau beint inn.

Fruit & Greens

Þessi græna blanda er glútenfrí, 100% jurtafæði og sett saman með það í huga að þú getir fengið allt það hollasta sem náttúran hefur upp á bjóða á auðveldan máta. Berin og ávextirnir eru sneisafull af andoxurum á meðan grænmetið og græna fæðan gefur af sér vítamín, steinefni og trefjar. Þessi blanda hjálpar þér að viðhalda heilsusamlegu sýrustigi á náttúrulegastan máta.

Með Fruit and Greens er einstaklega létt að breyta hvaða drykk í næringarbombu. Settu skeið út í próteindrykkinn þinn eða hræringinn þinn til að fá meira út úr honum.

Lifandimarkaður.is





Beepollen.
Hressileg dásemd vægast sagt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×