Bílar

Slitnu dekkin verða rauð

Þægileg og einföld lausn til r+aðlegra dekkjaskipta
Þægileg og einföld lausn til r+aðlegra dekkjaskipta
Bestu uppfinningarnar eru stundum sáraeinfaldar

Ekki gera allir sér grein fyrir því hvenær ráðlagt er að skipta um dekk á bíl sínum og mjög slitin dekk eru lífshættuleg. Því gæti hugmynd uppfinningamannanna Fenglin og Buyi verið sem guðsgjöf. Hún gengur út á það að dekk sem slitnar að ákveðnu marki skiptir um lit og verði til dæmis rautt eins og sést á myndinni. Blasir þá við eigandanum að tími sé kominn til að kaupa ný dekk. Hugmyndin er þó ekki flóknari en svo að í lagskiptu dekkinu er mislitt gúmmí.

Miðað er við að dekk sem ekið hefur verið um 20.000 kílómetra litist, en ekkert er þó til fyrirstöðu að dekk úr sterkari efnum endist ekki lengur. Ef dekk framtíðarinnar verða framleidd á þennan hátt mun það einnig reynast löggæslumönnum og starfsfólki á skoðunarstöðvum auðveldara að benda bíleigendum á að rétt sé að skipta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×