Tekur hálfan dag að reikna eitt gengistryggt lán Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 5. janúar 2013 18:31
Endurútreikningur gengistryggðra lána hefur tekið lengri tíma en bankarnir gerðu upphaflega ráð fyrir. Dæmi eru um að það hafi tekið starfsfólk hálfan daginn að reikna eitt lán. Rúmar sex vikur eru nú síðan að bankarnir ákváðu að ráðast í endurútreikning á ólögmætum gengistryggðum lánum miðað við dóma hæstaréttar á síðasta ári og eru fyrstu niðurstöður útreikninganna farnar að berast viðskiptavinum Arion Banki endurreiknar nú um tvö þúsund gengistryggð lán og birti um tvö hundruð viðskiptavinum niðurstöðu í desember og áætlar að birta tvö hundruð til viðbótar útreikninga í lok þessa mánaðar. Landsbankinn er einnig byrjaður að leiðrétta þau fasteignalán sem bankinn telur falla undir dómana og er meðaltalslækkun höfuðstóls lánanna um 34 prósent, en lækkunin getur verið mjög mismunandi. Þá vildi bankinn ekki gefa upp hversu mörg lán verið er að reikna né hversu mörg er búið að reikna. Íslandsbanki mun birta fyrstu niðurstöður útreikninga sinna um næstu mánaðarmót en samtals er bankinn að endurreikna um fjórtán þúsund gengistryggð lán en viðskiptavinir ERGO fjármögnunar sem eru um helmingur lánanna fá sínar niðurstöður um mánaðarmótin, en bankinn vildi ekki nefna neina meðaltals niðurfærslu. Það hefur hins vegar reynst flókið og tímafrekt að endurreikna lánin þar sem allskyns skilmálabreytingar og greiðsluúrræði hægja á ferlinu. Þannig henta sum lán engum ákveðnum reiknireglum og þurfa starfsmenn þá að reikna þau í höndunum sem getur tekið nokkrar klukkustundir eða allt upp í hálfan vinnudag og samkvæmt fulltrúum bankanna sem fréttastofa ræddi við í dag getur ferlið tekið ansi langan tíma. Endurútreikningarnar eru því skammt á veg komnir og gætu dregist frekar þar sem enn er beðið niðurstöðu dómstóla um ýmis álitaefni sem geta haft áhrif á útreikningana.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira