Spáir minnstu verðbólgu í tvö ár eða 3% í apríl 16. apríl 2013 10:59
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,1% í apríl frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga hjaðna um tæpa prósentu, úr 3,9% í 3,0%. Hefur verðbólgan þá ekki verið minni í tvö ár. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í kjölfarið geri greiningin ráð fyrir að verðbólga verði á svipuðu róli út árið, en aukist heldur á næsta ári samfara auknum umsvifum í hagkerfinu. Hagstofan birtir VNV fyrir apríl kl. 9:00 þann 29. apríl næstkomandi. „Styrking krónu um ríflega 10% frá miðjum febrúarmánuði hefur breytt verðbólguhorfum verulega til skemmri tíma litið. Áhrif styrkingarinnar eru þegar tekin að koma fram í verði innfluttra vara og gerum við ráð fyrir að svo verði áfram á næstunni,“ segir í Morgunkorninu. „Áhrifin eru hvað sterkust í eldsneytisverði, en þar bætist við talsverð verðlækkun á heimsmarkaði. Við gerum ráð fyrir 5% lækkun eldsneytisverðs í aprílmánuði frá mánuðinum á undan, sem hefur áhrif til 0,3% lækkunar VNV. Þá hafa bílaumboð sum hver lækkað verðskrár sínar talsvert á síðustu vikum...og merki eru um verðlækkun á ýmsum innfluttum vörum, allt frá matvælum til byggingarefnis. Styrkingin hefur einnig þau áhrif að innfluttar vor- og sumarvörur eru nú væntanlega keyptar inn á hagstæðara gengi en í fyrra. Má þar nefna að krónan var að jafnaði u.þ.b. 4% sterkari frá marsbyrjun til miðs aprílmánaðar á þessu ári en á sama tíma í fyrra.“ Þá segir að næstu mánuði mun áhrifa af styrkingu krónu halda áfram að gæta í VNV. „Við gerum raunar ráð fyrir að krónan víki ekki langt frá núverandi gildi fram á haustið, og að áhrif styrkingarinnar fjari því út þegar líður á árið,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira