Dregið verði úr uppgreiðsluáhættu Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. apríl 2013 16:03 Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra fékk skýsluna afhenta í dag.
Starfshópur sem fjallaði um stöðu og framtíð Íbúðalánasjóðs telur að finna þurfi hentuga leið til að draga úr hluta af þeirri uppgreiðsluáhættu sem Íbúðalánasjóður stendur frammi fyrir. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra fékk tillögurnar afhentar í dag og þær voru gerðar opinberar síðdegis. Í tillögunum er fjallað um þann uppgreiðsluvanda sem blasir við Íbúðalánasjóði. Eftir að viðskiptabankarnir hófu að veita óverðtryggð lán tóku lántakendur að greiða upp verðtryggð lán sín hjá Íbúðalánasjóði til þess að geta tekið ný lán hjá viðskiptabönkunum. Þetta hefur valdið því að bankinn sat eftir með verulegt lausafé. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um það að Íbúðalánasjóður veiti óverðtryggð lán, þótt heimild fyrir slíku liggi fyrir frá Alþingi. Þá verði aðgætni í starfsemi sjóðsins þannig að lánahlutföll verði ekki hækkuð umfram það sem nú er. Þannig er lagt til að hlutfall lána til einstaklinga fari ekki yfir 80% af verðmæti húsnæðis og lán til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka án hagnaðarkvaðar verði eins og tiltekið er í lögum um húsnæðismál. Einnig er lagt til að áfram verði unnið að eflingu á greiðslumatsferli og útlánaeftirliti innan sjóðsins. Þannig verði betur tryggt að lántakendur Íbúðalánasjóðs séu í stakk búnir til að standa við skuldbindingar sínar og þar með ættu vanskil og útlánatöp að verða minni til framtíðar.Draga úr ábyrgð ríksisins Þá segir starfshópurin að draga þurfi úr ábyrgð ríkisins á skuldbindingum sjóðsins en ríkissjóður ber nú 100% ábyrgð á skuldum Íbúðalánasjóðs og námu þær 942 milljörðum króna um síðustu áramót sem nemur 55% af vergri landsframleiðslu. Þá leggur hópurinn til að stofnaður verði heildsölubanki og að Íbúðalánasjóður fjármagni sig á markaði í gegnum þann banka. Hlutverk heildsölubankans lúti einungis að því að fjármagna útlán fyrir hönd Íbúðalánasjóðs og fjármálafyrirtækja. Gert er ráð fyrir að viðskiptasamband lántakenda verði við einstakar lánastofnanir sem með aðild sinni að heildsölubankanum geti veitt samkeppnishæf fasteignaveðlán á þann hátt sem viðkomandi lánastofnun telji best fyrir komið og að Íbúðalánasjóður geti veitt þjónustu í almannaþágu. Starfshópurinn leggur til að frekari athugun fari fram á vegum stjórnvalda hvernig haganlegast sé að standa að stofnun heildsölubanka í samstarfi við Samtök fjármálafyrirtækja, Íbúðalánasjóð og aðra hagsmunaaðila.Hér má sjá tillögurnar
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira