Arctic Trucks útbúa brynvarða jeppa fyrir norsku sérsveitina Þorgils Jónsson skrifar 17. desember 2013 08:27 Norska lögreglan nútímavæðir nú bílaflota sinn. Meðal annars hefur hún fengið afhenta ellefu jeppa, sérútbúna af íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks. Mynd/Norska lögreglan
Íslenska fyrirtækið Arctic Trucks hefur getið sér gott orð víða um heim fyrir sérútbúnu jeppana sína og hefur meðal annars verið í fréttum nýlega vegna ferðar þar sem Harry Bretaprins var meðal þeirra sem fóru á suðurpólinn á bílum frá fyrirtækinu. Jeppar frá Arctic Trucks hafa einnig einnig farið á norðurpólinn. Eitt nýjasta verkefnið er í Noregi þar sem fyrirtækið afhenti nýlega lögreglu ellefu brynvarða Toyota Land Cruiser jeppa. Herjólfur Guðbjartsson, framkvæmdastjóri viðskipta- og þróunarsviðs hjá Arctic Trucks, segir í samtali við Fréttablaðið að þarna sé lögreglan að mæta ákveðinni þörf með því að koma inn í rammasamning milli norska hersins og Arctic Trucks.Herjólfur Guðbjartsson„Lögreglan hefur verið að nútímavæða bílaflotann hjá sér síðustu ár eftir að hafa verið á frekar gömlum bílum. Hún leigir þarna bíla af hernum og fær sömu tegund af bílum, sem við tökum svo og lögum eftir sérstökum þörfum lögreglunnar, setjum meðal annars á þá blá blikkljós.“ Herjólfur segist, vegna trúnaðar, ekki geta farið náið út í tæknilega lýsingu á búnaðinum sem settur er upp í bílunum, en játar aðspurður að þeir séu gerðir til að þola byssuskot og sprengingar. „Þessir bílar verða svo notaðir af sérsveit lögreglunnar í öllum umdæmum,“ segir Herjólfur og bætir við að herinn hafi notað bílana bæði í verkefnum innanlands og utan. Síðustu tvö ár hefur Arctic Trucks útbúið tæplega 100 bíla fyrir herinn og lögregluna samkvæmt rammasamningnum. Sá hljómar upp á 230 milljónir norskra króna, hátt í fimm milljarða íslenskra króna, og er til tíu ára. Segir Herjólfur að gert sé ráð fyrir að breyta 200-300 bílum á næstu tveimur til þremur árum. Arctic Trucks var stofnað sem aukahlutaþjónusta innan Toyota á Íslandi árið 1990 en hefur stækkað mikið að umfangi síðustu árin. Árið 2005 var fyrirtækið selt út úr Toyota, rekur nú dótturfyrirtæki í Noregi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum og er með starfsemi enn víðar um heiminn og virðist ekkert lát vera á. „Við vorum að gera samstarfssamning við Toyota í Póllandi um að breyta bílum fyrir þá og það er mjög spennandi að koma íslensku hugviti inn í bílageirann,“ segir Herjólfur.
Mest lesið Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ Atvinnulíf Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Fleiri fréttir Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Sjá meira