Viðskipti innlent

Fjármálastarfsemi vex fiskur um hrygg

Jakob Bjarnar skrifar
Nýskráningar einkahlutafélaga voru flestar í fjármála- og vátryggingastarfsemi.
Nýskráningar einkahlutafélaga voru flestar í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Stefán
Í júlímánuði voru nýskráð 146 einkahlutafélög, til samanburðar við 136 í ágúst 2012.

Nýskráningar voru flestar í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Fyrstu 7 mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 1.169, en það er 10,5 prósent aukning frá sama tíma í fyrra þegar 1.058 fyrirtæki voru skráð. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þá voru 49 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júlímánuði, flest í fasteignaviðskiptum. Fyrstu 7 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 582, en það er rúmlega 5 prósent fækkun frá sama tímabili í fyrra þegar 615 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×