2,2 milljarða hagnaður Reita: „Þokunni er að létta" Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 30. ágúst 2013 15:05 Heildarhagnaður af rekstri Reita hf. nam rúmum 2,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum.
Heildarhagnaður af rekstri Reita fasteignafélags hf. nam rúmum 2,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta eru niðurstöður úr árshlutareikningi samstæðunnar. Eigið fé samstæðunnar í lok júní var rúmir 15,1 milljarður króna samkvæmt efnahagsreikningi. Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags hf. segir að rekstur Reita sé í mjög góðu standi og góðu jafnvægi eins og tölurnar úr árshlutareikningnum bera með sér. Hann segist horfa björtum augum til framtíðar. Það megi segja að það hafi verið lægð yfir landinu en það sé að létta til. „Þokunni er að létta, það er samt smá mistur ennþá,“ segir Guðjón. „Við erum að skila fyrstu sex mánuðum ársins í mjög góðu standi og í takt við áætlanir félagsins. Það er ekkert sem kemur á óvart í uppgjörinu, rekstrarhagnaður er jafnvel örlítið yfir væntingum og sömuleiðis leigutekjur,“ segir Guðjón. „Tölurnar eru mjög stórar í okkar tilfelli vegna þess að eignasafnið er mjög stórt. Við erum að endurmeta fjárfestingar félagsins upp á 2,2 milljarða króna sem er meginskýringin á stórri hagnaðartölu eftir skatta,“ segir hann. Meðal þekktra fasteigna í eigu Reita eru Kringlan, Hótel Nordica, Hótel Natura, Kauphallarhúsið og Holtagarðar. Reitir er einnig stærsti eigandi fasteigna í miðborg Reykjavíkur og eiga til dæmis gamla Pósthúsið, Aðalstræti 12 og húsið þar sem Kaffi París er.
Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Atvinnulíf Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Sjá meira