Viðskipti innlent

Sjóvá á hlutabréfamarkað

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár
Stjórn Sjóvár hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka sem umsjónaraðila með almennu hlutafjárútboði og skráningu félagsins á Nasdaq OMX Iceland.

Stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin þar til viðskipta á árinu 2014.

Markmiðið með útboðinu er að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins.

„Með þessum samningi hefst nú lokaundirbúningur að skráningu Sjóvár í kauphöll.  Félagið hefur sýnt góða afkomu síðastliðin misseri og er í traustum rekstri. Það er okkar trú að Sjóvá sé góður kostur fyrir fjárfesta og góð viðbót við hlutabréfamarkaðinn á Íslandi,” segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×