Viðskipti innlent

Sjóvá á leið á hlutabréfamarkað

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Stefnt er að því að hlutabréf Sjóvá verði tekin til viðskipta í kauphöllinni á næsta ári.
Stefnt er að því að hlutabréf Sjóvá verði tekin til viðskipta í kauphöllinni á næsta ári. Mynd/Vísir
Sjóvá hefur undirbúning að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað. Stjórn Sjóvár-Almennra trygginga hf. hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. sem umsjónaraðila með almennu hlutafjárútboði og skráningu félagsins á Nasdaq OMX Iceland.

Markmiðið með útboðinu er að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins. Hluthafar félagsins í dag eru SF1 slhf., fagfjárfestasjóður á vegum Stefnis hf., SAT Eignarhaldsfélag hf. sem er félag í eigu Glitnis banka hf. og Íslandsbanki hf. Stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Nasdaq OMX Iceland á árinu 2014.

„Með þessum samningi hefst nú lokaundirbúningur að skráningu Sjóvár í kauphöll.  Félagið hefur sýnt góða afkomu síðastliðin misseri og er í traustum rekstri. Það er okkar trú að Sjóvá sé góður kostur fyrir fjárfesta og góð viðbót við hlutabréfamarkaðinn á Íslandi,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×