Seldum gistinóttum fjölgar Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. júlí 2013 09:30 Uppistaðan í söluaukningu gistinátta á hótelum er hjá erlendum ferðamönnum.
Sextán prósenta aukning var milli ára á fjölda seldra gistinátta á hótelum landsins í maí. Þær voru 161.300 á þessu ári, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. „Gistinætur erlendra gesta voru um 79 prósent af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en það er fjölgun um 21 prósent frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 14 prósent milli ára í maí,“ segir í umfjöllun Hagstofu Íslands. Talningin nær bara til hótela sem opin eru allt árið. „Á höfuðborgarsvæðinu voru 110.000 gistinætur á hótelum í maí sem er aukning um 8 prósent frá sama mánuði í fyrra. Utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði gistinóttum umtalsvert á milli ára. Á Suðurnesjum voru 8.000 gistinætur í maí en 4.800 í maí í fyrra. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 5.000 í 8.100 og á Norðurlandi fjölgaði þeim um 48 prósent,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar.Mynd/Hagstofa ÍslandsÞá kemur fram að á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða hafi gistinætur verið 6.500 í maí sem sé um 30 prósenta aukning frá fyrra ári. Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi fjölgaði um 7 prósent en þar voru gistinætur um 15.200 nú en 14.100 í maí í fyrra. „Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 22 prósent á fyrstu fimm mánuðum ársins. Gistinætur á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins voru 693.400 en 569.500 á sama tíma í fyrra. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 24 prósent miðað við sama tíma í fyrra en gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 13 prósent.“
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira