Svört skýrsla um Eir: Sagðir hafa eytt milljónum í utanlandsferðir Valur Grettisson skrifar 5. júlí 2013 14:00
Í skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte gerði um rekstur hjúkrunarheimilsins Eirar kemur meðal annars fram að forstjóri heimilisins Sigurður Helgi Guðmundsson, auk fjármálastjórans og forstjóra, hafi nýtt tæplega þrjár milljónir króna af fé heimilisins í flugferðir, gistingu og veitingar erlendis. Deloitte fór yfir afrit af reikningum sem greiddir voru úr þróunarsjóði á árunum 2009-2011. Greiðslurnar námu samtals 2,7 milljónum króna og voru vegna dagpeninga, flugferða, gistinga og veitinga erlendis. Í skýrslunni segir að greiðslurnar tengist fyrrverandi forstjóra Eirar og fjölskyldumeðlimum hans, fyrrverandi fjármálastjóra Eirar og maka hans, fyrrverandi framkvæmdastjóra rekstrar og fyrrrverandi starfsmanni Eirar. Allar greiðslurnar voru samþykktar, ýmist af forstjóra eða fjármálastjóra. Í skýrslu Deloitte segir að ekki hafi verið sýnt fram á að greiðslurnar tengist rekstri hjúkrunarheimilsins með beinum hætti. Eir skuldar um 8 milljarða en laust fé er nánast uppurið. Af átta milljörðum skuldar Eir sex milljarða til lánadrottna, íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða, sem lánuðu fyrir uppbyggingu á fasteignum félagsins gegn veðum í eignunum. Fréttastofa Stöðvar 2 fjallaði ítarlega um málið á síðasta ári. Þá kom meðal annars fram að Ríkisendurskoðandi gaf Sigurði Helga færi á að endurgreiða 200 þúsund króna sólarlandaferð sem hann gaf tengdasyni sínum úr bleyjusjóði hjúkrunarheimilisins fyrir meint lögmannsstörf. Um þetta er fjallað í skýrslunni, en þar segir að færsla afsláttar í bókhaldi vegna bleyjusjóðsins, hafi ekki verið í samræmi við lög. Hér fyrir neðan má nálgast skýrsluna.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent