Viðskipti innlent

Stórmarkaðir vísa eftirlitsmönnum aftur á dyr

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hagkaup er ein þeirra verslana sem vísuðu verðlagseftirlitsmönnunum á dyr. Hinar verslunirnar eru Nóatún, Víðir og Kostur.
Hagkaup er ein þeirra verslana sem vísuðu verðlagseftirlitsmönnunum á dyr. Hinar verslunirnar eru Nóatún, Víðir og Kostur.
Starfsmönnum Verðlagseftirlits ASÍ var vísað á dyr í fjórum verslunum í gær, líkt og gerðist í síðasta mánuði. Þær verslanir sem vilja takmarka aðgengi neytenda að upplýsingum um vöruverð hjá sér eru Hagkaup, Nóatún, Víðir og Kostur, samkvæmt upplýsingum frá ASÍ. Þetta gerist á sama tíma og verðbólga í landinu er komin á skrið.

ASÍ segir að ætla megi að verslanir sem vilji ekki að vöruverð sitt birtist opinberlega og því síður borið saman við vöruverð annarstaðar séu að leita skjóls til verðhækkana.

„Verðlagseftirlit ASÍ gegnir mikilvægu hlutverki við eftirfylgni með samkomulagi sem ASÍ og SA undirrituðu við framlengingu kjarasamninga þann 21. janúar síðastliðinn. Þar voru aðlar sammála um að beita sér fyrir aðgerðum til lækkunar verðlags m.a. með auknu aðhald að verðhækkunum," segir í tilkynningu frá ASÍ.

Þá segir ASÍ að verslanirnar Hagkaup, Nóatún, Víðir og Kostur virðist ekki tilbúnar til að sýna launafólki samstöðu með því að halda vöruverði niðri og þar með verðbólgunni í skefjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×