Hörð átök um stjórnarskrármálið 6. mars 2013 18:12 Björn Valur Gíslason þingmaður VG.
Hörð átök hafa átt sér stað í umræðum um stjórnarskrárfrumvarpið á Alþingi í dag, en nú fer lokatilraun þeirra sem vilja að frumvarpið verði afgreitt í heild sinni fram á þingi, en stefnt er að því að ljúka annarri umræðu nú síðdegis. Þór Saari hefur lagt fram vantrauststillögu vegna nýrrar tillögu stjórnarmeirihlutans um að klára ekki heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar nú. Ásmundur Einar Daðason Framsóknarflokki mælti fyrir málamiðlunartillögu Framsóknarflokksins um annað auðlindaákvæði en er í frumvarpinu og féll það í vægast sagt grýttan jarðveg og kallaði á hörð viðbrögð stuðningsmanna frumvarpsins, ekki síst hjá gömlum samflokksfélögum Ásmundar Einars í Vinstri grænum. Ákvæðið felur í sér tillögu auðlindanefndar frá árinu 2000 að því viðbættu að aldrei megi afsala ákvörðun á auðlindum til alþjóðlegra stofnana. Björn Valur Gíslason þingflokksformaður Vinstri grænna sagði rétt hjá Ásmundi að ekki ætti að gera stjórnarskrá fyrir einstaka flokka og þess vegna hefði þjóðin verið fengin í málið. „Ég held að ég hafi aldrei heyrt Framsóknarflokkinn, þennan hokna aldna, spillta stjórnmálaflokk leggjast eins lágt og í þessum umræðum í dag. Ég held að það sé leitun að öðrum eins aumingjaskap og háttvirtir þingmenn Framsóknarflokksins eru að leggja fram með þessari tillögu hér um að nýting á þjóðarauðlindum séu óbein einkaeignarréttindi þeirra sem fá að njóta þess," sagði Björn Valur Gíslason, þingmaður VG. Ásmundur sagði að það ætti að ná fram breytingu á stjórnarskránni með samstöðu. Nú stendur yfir umræða um frumvarp formanna Samfylkingar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar um að ákvæði um hvernig breyta skuli stjórnarskrár verði breytt, þannig að næsta þing geti haldið áfram þeirri vinnu sem hvílir á bakvið stjórnarskrárfrumvarið, og því þurfi ekki að boða til nýrra kosninga að loknum þeim næstu til að breyta stjórnarskránni. Atkvæðagreiðsla um þetta frumvarp flokksleiðtoganna, ræður í raun örlögum stjórnarskrárfrumvarpsins.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira