Lögregla og tollur hafa aðgang að gögnum um gjaldeyriskaup 11. júní 2013 12:33
Lögreglan og skatt- og tollayfirvöld hafa aðgang að gagnagrunni fyrir gjaldeyriskaup og fjármagnstilfærslur í baráttu sinni gegn fíkniefnasmygli. Þetta kemur fram á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Á vefsíðunni segir að Ríkisendurskoðun telji að stjórnvöld hafi brugðist með fullnægjandi hætti við fjórum ábendingum um leiðir til að sporna við fíkniefnasmygli. Ábendingarnar voru upphaflega settar fram í skýrslu sem birt var árið 2007 en ítrekaðar árið 2010. Árið 2007 beindi Ríkisendurskoðun tólf ábendingum til stjórnvalda um leiðir til að sporna við smygli á ólöglegum fíkniefnum hingað til lands. Þremur árum síðar, árið 2010, kannaði stofnunin að hvaða marki þessum ábendingum hefði verið fylgt. Niðurstaðan var sú að átta ábendingar hefðu komið til framkvæmda en fjórar ekki og voru þær ítrekaðar í skýrslu. Þær beindust að mismunandi ráðuneytum og stofnunum og lutu að ólíkum þáttum þessara mála: Forsætisráðuneyti var hvatt til að hafa forgöngu að heildrænni stefnumörkun í fíkniefnamálum sem næði jafnt til aðgerða til að hefta eftirspurn og framboð efnanna. Efnahags- og viðskiptaráðuneyti (nú fjármála- og efnahagsráðuneyti) var hvatt til að kanna til hlítar hvort koma mætti á fót sérstökum gagnagrunni fyrir gjaldeyriskaup og fjármagnsfærslur milli landa og heimila lögreglu, skatt- og tollyfirvöldum aðgang að honum. Utanríkisráðuneyti var hvatt til að kanna til hlítar hvort tilteknar breytingar á reglum um tilkynningarskyldu skipa samræmdust skyldum Íslands samkvæmt Hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Loks voru tollyfirvöld hvött til að setja sér árleg starfsmarkmið um „hittni“ fíkniefnaeftirlits til að meta hversu markvisst og skilvirkt það væri. Nú þremur árum eftir umrædda ítrekun hefur Ríkisendurskoðun kannað viðbrögð stjórnvalda við henni. Í nýrri eftirfylgniskýrslu stofnunarinnar kemur fram að brugðist hefur við ábendingunum með þeim hætti að ekki er talin þörf á að ítreka þær öðru sinni. Aðkomu stofnunarinnar að umræddu máli sé þar með lokið.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira