Viðskipti innlent

Íbúðaverð í borginni hefur hækkað um 5,8% á einu ári

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka og hefur hækkað um 5,8% á síðustu 12 mánuðum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,2% í febrúar miðað við fyrri mánuð. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,4%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×