Viðskipti innlent

66 fyrirtæki urðu gjaldþrota

Alls voru 66 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í nóvembermánuði, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum. Þetta eru næstum helmingi færri gjaldþrot en í sama mánuði árið áður þegar þau urðu 115 talsins.

Á vefsíðu Hagstofunnar segir að fyrstu 11 mánuði ársins í fyrra hafi fjöldi gjaldþrota verið 977, sem er rúmlega 32% fækkun frá sama tíma árið áður þegar 1.441 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. Flest gjaldþrot fyrstu 11 mánuði ársins eru í flokknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 198 talsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×