32 prósenta fækkun gjaldþrota ÓKÁ skrifar 5. janúar 2013 08:00 Fyrirtæki í byggingariðnaði fóru helst á hausinn í fyrra. Fréttablaðið/Vilhelm
Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs voru 1.605 einkahlutafélög nýskráð en fjöldi gjaldþrota nam 977. Fram kemur á vef Hagstofu Íslands að frá fyrra ári hafi nýskráningum fyrstu ellefu mánuði nýliðins árs fjölgað um tæplega þrjú prósent, en gjaldþrotum fækkað um rúmlega 32 prósent. Hagstofan birti í gær tölur um skráningu einkahlutafélaga og gjaldþrotaskipti í nóvembermánuði síðastliðnum. „Í nóvembermánuði voru skráð 132 ný einkahlutafélög, flest í fasteignaviðskiptum og í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Til samanburðar voru 165 ný einkahlutafélög skráð í nóvember í fyrra,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar. Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 voru nýskráð 1.563 fyrirtæki, miðað við 1.605 á sama tíma á síðasta ári. „Þá voru 66 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í nóvembermánuði, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.“ Gjaldþrot fyrstu ellefu mánuði ársins fóru úr 1.441 árið 2011 í 977 árið 2012. Að því er fram kemur á vef Hagstofunnar eru flest gjaldþrot sem fram eru komin á árinu 2012 í flokknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 198 talsins. Fjöldinn nemur rúmum 20 prósentum allra gjaldþrota tímabilsins.
Tengdar fréttir 66 fyrirtæki urðu gjaldþrota Alls voru 66 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í nóvembermánuði, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum. Þetta eru næstum helmingi færri gjaldþrot en í sama mánuði árið áður þegar þau urðu 115 talsins. 5. janúar 2013 08:00 Mest lesið Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Viðskipti erlent Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Mörg þúsund nýta enn 2G og 3G sem heyra sögunni til um áramótin Neytendur Olíufélögin hafi átt í samráði án þess að tala saman Neytendur Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Þessi í vinnunni sem þykist vita allt og hefur alltaf rétt fyrir sér Atvinnulíf Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Sjá meira
66 fyrirtæki urðu gjaldþrota Alls voru 66 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í nóvembermánuði, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum. Þetta eru næstum helmingi færri gjaldþrot en í sama mánuði árið áður þegar þau urðu 115 talsins. 5. janúar 2013 08:00
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur