TM Software með tilboð í tilefni nýrrar útgáfu WebMaster 18. janúar 2013 06:00 Brynjar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá TM Sofware, segir WebMaster-vefumsjónarkerfið mjög fjölhæfa og sveigjanlega lausn og að fjölmörg fyrirtæki hafi sett upp heimasíður sínar í kerfinu.Mynd/Gva
Val á vefumsjónarkerfi skiptir sköpum varðandi sýnileika og upplýsingagjöf um vörur og þjónustu á netinu. Ný útgáfa af WebMaster-vefumsjónarkerfinu frá TM Software leit dagsins ljós í byrjun árs. "WebMaster-vefumsjónarkerfið er mjög fjölhæf og sveigjanleg lausn enda eru fjölmörg fyrirtæki með vefsíður sínar uppsettar í kerfinu. WebMaster-kerfið hefur einnig skapað sér gott orðspor fyrir að vera öflugt vefumsjónarkerfi fyrir rekstur innri vefsvæða fyrirtækja,“ segir Brynjar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá TM Software. WebMaster-kerfið býður upp á ýmis viðbótarkerfi eins og póstlistakerfi sem notað er til að senda út markpósta. "Formasmiðurinn er einnig vinsælt viðbótarkerfi sem hægt er að nýta fyrir fyrirspurnir, pantanir, þjónustubeiðnir og fleira sem vistast í gagnagrunn til úrvinnslu,“ upplýsir Brynjar. TM Software er með marga ferðaþjónustuaðila sem keyra vefsvæði og bókunarvélar sínar í WebMaster-kerfinu og fer sá hópur ört stækkandi. "Nýlega bættist Útivist í hópinn með vefinn utivist.is í nýjustu útgáfu WebMaster og nokkrir ferðaþjónustuvefir eru í smíðum.“ WebMaster-kerfið er einnig mikið notað í rekstur vefverslana. "Bæði vefverslanir sem nýta sér vefverslunareiningar í kerfinu sjálfu, og eins vefverslanir sem eru með vörugrunninn í öðrum kerfum. Hann tengist þá WebMaster í viðkomandi gagnagrunni og birtir vörurnar á vefsvæðinu.“ Borgarleikhúsið er eitt þeirra fyrirtækja sem nýta sér þjónustu TM Software.Sveigjanleiki kerfisins með tengingar í aðra grunna er einnig nýttur í ýmsa bókunarvefi og er nýr vefur Borgarleikhússins, borgarleikhus.is, gott dæmi um það. "Þar eru upplýsingar um sýningar og viðburði sóttar í miðasölukerfi og birtar innan vefsvæðisins með dag- og tímasetningum.“ WebMaster keyrir einnig áheitavefi sem vakið hafa mikla athygli eins og mottumars.is og hlaupastyrkur.is. "Fljótlega verður ný þjónusta opnuð á vefsvæðinu áheit.is þar sem einstaklingar og félagasamtök geta stofnað sín eigin áheitavefsvæði.“ Nánari upplýsingar um þjónustu og veflausnir TM Software er að finna á vefsvæðinu www.tmsoftware.is. WebMaster keyrir einnig áheitavefi sem vakið hafa mikla athygli eins og mottumars.is.
Mest lesið Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Viðskipti innlent „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Viðskipti innlent „Gæðastimpill sem einfaldlega virkar” Framúrskarandi fyrirtæki Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu Viðskipti innlent Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Viðskipti innlent Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Viðskipti innlent Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar Viðskipti innlent Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira