Viðskipti innlent

Nokkuð dregur úr hækkunum á íbúðaverði í borginni

Íbúðaverð heldur áfram að hækka þótt nokkuð hafi dregið úr þein hækkunum í síðasta mánuði.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% í desember frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár íslands. Þar segir að síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1.7%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×