Viðskipti innlent

Guðjón náði bestri ávöxtun - Birtist á turninum í New York

Magnús Halldórsson skrifar
Mynd af Guðjóni Guðjónssyni birtist á hinum þekkta turni Nasdaq í New York, eftir að hann hafði tekið við verðlaunum fyrir að ná bestri ávöxtun allra spilara í Ávöxtunarleiknum í desember. Nasdaq OMX kauphöll Íslands er einn þeirra aðila sem að leiknum standa.
Mynd af Guðjóni Guðjónssyni birtist á hinum þekkta turni Nasdaq í New York, eftir að hann hafði tekið við verðlaunum fyrir að ná bestri ávöxtun allra spilara í Ávöxtunarleiknum í desember. Nasdaq OMX kauphöll Íslands er einn þeirra aðila sem að leiknum standa.
Guðjón Guðjónsson náði bestri ávöxtun allra í Ávöxtunarleiknum í desember í fyrra, og tók við verðlaunum vegna þess í Kauphöll Íslands í dag. Hann fékk að launum i pad Mini frá Epli.is, umboðsaðila Apple á Íslandi.

Guðjón, sem starfar sem pípulagningamaður, sagðist hafa haft bæði gagn og gaman af því að spila leikinn, en hann hófst formlega 1. október í fyrra. Guðjón ávaxtaði eignir sínar um 30,5 prósent í mánuðinum.

Leikurinn er samstarfsverkefni Keldunnar, Vísis, Nasdaq OMX kauphallar Íslands, VÍB eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, og Libra.

Á sjöunda þúsund þátttakendur eru í leiknum, en þeir keppa í því að ávaxta spilapeninga sína með því að fjárfesta í eignaflokkum, s.s. hluta- og skuldabréfum, sem breytast eftir raunbreytingum á markaði.

Meginmarkmið leiksins er að stuðla að betra fjármálalæsi og skilningi á ávöxtunarmarkaði fyrir fjármagn hér á landi, ekki síst hluta- og skuldabréfamarkaði.

Í vor mun keppnistímabilinu ljúka formlega, og mun sá sem ávaxtar eignir sínar best fá í verðlaun ferð fyrir tvo til New York auk 200 þúsund króna í sjóðum VÍB.

Sjá má Facebook síðu leiksins hér, en þar er greint frá því helsta sem er að gerast í leiknum.

Þá er innskráningarsíða leiksins á Vísi, hér, en hægt er að byrja hvenær sem er.

Liðakeppni í leiknum mun hefjast á mánudag, en þá geta þátttakendur myndað hópa og keppt í liðum, í því ávaxta eignir sínar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×