Fylgjum keðjunni frá A til Ö Óli Kristján Ármannsson skrifar 16. október 2013 07:00 Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Sports Direct á Íslandi. Fréttablaðið/Pjetur „
Gengið hefur verið fram úr vonum,“ segir Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri verslunar Sports Direct í Kópavogi. Umferð í verslunina, sem opnaði fyrir um einu og hálfu ári síðan hafi verið þétt og góð. „Samt höfum við ekki mikið gert í því að láta á okkur bera. Við höfum ekki auglýst að ráði, en fregnir af versluninni hafa borist frá manni til manns.“ Þar segir Sigurður Pálmi hafa lagst á eitt, gott verð og mikið vöruúrval. „Við erum með mjög góða blöndu af þessu tvennu og svo sem engin geimvísindi þar að baki. Við fylgjum Sports Direct keðjunni frá A til Ö. Þótt að við rekum búðina sjálfir undir franchise-samningi, þá hagar hún sér í rauninni eins og fyrirtækisbúð,“ bætir hann við. Sama hátt segir hann hafðan á þar sem Sports Direct á í samstarfi við sjálfstæða söluaðila, en það sé undantekningin fremur en hitt hjá keðjunni. „Þeir eiga líka í einhverju samstarfi í Portúgal og á Írlandi.“ Sigurðir Pálmi segir allnokkuð hagræði af nánu samstarfi við keðjuna. Kassakerfi verslunarinnar er tengt Sports Direct og öll innkaup fara fram í gegn um keðjuna. Þar með njóti verslunin hér stærðarinnar hjá Sports Direct. Ein stór búð nægirÍ næsta mánuði flytur verslunin frá Smáratorgi í Kópavogi yfir í Lindir. „Við erum nánast að tvöfalda verslunina.,“ segir Sigurður Pálmi. Frekari landvinningar séu ekki í kortunum. „Ég held að það þurfi ekkert meira og þetta eigi eftir að duga þessum litla markaði ágætlega. Hinsvegar ætlum við að auka vöruúrval til muna á nýja staðnum.“ Hann hefur áður gagnrýnt hversu margir fermetrar fari hér á landi undir verslunarhúsnæði. „Og það endar alltaf í verðinu.“ Hér segir Sigurður Pálmi marga kvarta yfir ýmsum þáttum í umhverfi verslunarreksturs. „Auðvitað er rétt að tollar og skattar eru of háir. Tollakerfið hér er eitt það flóknasta sem ég veit um. En það er samt svo margt annað sem hægt er að laga líka.“ Að auki kveðst Sigurður Pálmi líka óttast að verði tollar og skattar lækkaði þá skili það sér ekki sem skyldi í útsöluverði vöru. „Ef menn ætla í alvöru að taka til í álagningu þá geta þeir vel gert það heima hjá sér fyrst, áður en nokkuð kemur frá ríkinu.“ Sigurður Pálmi segir opnun verslunar Sports Direct hér á landi hafa átt sér nokkurn aðdraganda. „Meðeigandi minn Jeff Blue kynnti mig fyrir Sports Direct 2009 og ég man þegar ég labbaði þar inn að hafa hugsað með mér að þetta væri málið, bæði út af verði og úrvali. Í rauninni er þetta ekki íþróttavöruverslun þannig séð, heldur skó- og fataverslun. Við bjóðum upp á svo miklu meira en íþróttavörur.“ Þótt fyrstu fundir hafi átt sér stað 2009 þá gerðist lítið í um eitt og hálft ár þaðan í frá. „Þá er ég að klára skóla og ákvað að kýla á þetta,“ segir Sigurður Pálmi, en þá varð gangurinn líka slíkur að hann þurfti að sleppa síðustu önninni. „En það var nú allt í lagi.“ Með verslunarrekstur í blóðinuHér á landi segir Sigurður Pálmi mikið hafa verið einblínt á verð matvöru, en fatnaður sé líka stór kostnaðarliður hjá fjölskyldum landsins. „Ég hef alveg hitt viðskiptavini hér niðri sem hafa sagt mér að þeir hafi nú í fyrsta sinn í langan tíma getað keypt takkaskó á öll börn fjölskyldunnar í einu.“ Sigurður Pálmi segir ekki útilokað að val hans á starfsvettvangi kunni að vera genetískt að hluta. Afi hans Pálmi Jónsson stofnaði Hagkaup og móðir hans er athafnakonan Ingibjörg Pálmadóttir, aðaleigandi 365. Eiginmaður Ingibjargar er svo Jón Ásgeir Jóhannesson sem gert hefur garðinn frægan í verslun bæði heima og erlendis. „Maður er náttúrlega alinn upp við verslun og þetta hefur verið í allri fjölskyldunni. Maður hefur því svo sem haft það á tilfinningunni að maður ætti eftir að enda í einhverju verslunartengdu,“ játar Sigurður Pálmi. „En það sem mér finnst einna skemmtilegast við þetta, því það sem fjölskyldan hefur verið að fást við er mestanpart heimatilbúið, er að komast í tæri við alþjóðlega keðju. Mér finnst ég hafa lært meira á þessu en mörgu öðru í gegn um tíðina.“ Gangurinn hjá Sports Direct keðjunni segir Sigurður Pálmi líka að sé mikill. „Í sumar opnuðu þeir nýja búð aðra hvora viku og eru að færa sig í auknum mæli inn í Austur-og Suður-Evrópu líka.“ Í slíku samstarfi þurfi maður ekki stöðugt að vera að finna upp hjólið líkt og stundum hafi viljað brenna við í íslenskum rekstri.
Mest lesið Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Neytendur Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Viðskipti innlent Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Viðskipti innlent Ráðnir forstöðumenn hjá OK Viðskipti innlent Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent Brynja til Fastus frá Samkaupum Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Fleiri fréttir Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Sjá meira