Hljótum að geta sett í einn eða tvo Kristján Hjálmarsson skrifar 17. mars 2013 20:19 Guðmundur Atli Ásgeirsson með einn vænan. Hann vonast til að ná í einn eða tvo í opnuninni í Galtalæk. Mynd/Úr einkasafni "
Það verður spennandi að fá að opna ána í ár. Við fáum hana úthvílda. Við hljótum að geta sett í einn eða tvo fiska," segir Guðmundur Atli Ásgeirsson, veiðileiðsögumaður, sem mun opna Galtalæk í ár þann 1. apríl næst komandi. Þann dag hefst veiðitímabilið formlega þótt en sé töluvert í að það fari á flug. Guðmundur Atli mun opna Galtalæk ásamt bræðrunum Ólafi og Eiríki Stefánssonum. Þeir eru báðir miklir veiðimenn. Með þeim í för verður leynigestur en Guðmundur Atli vill ekki upplýsa hver það er - ætlar að koma bræðrunum á óvart. "Ég hef aldrei áður farið í opnunina í Galtalæk. Það eru stórir fiskar í þessum læk. Það er enginn búinn að hræra í ánni og ef það verður þokkalegt veður ætti að vera einhver veiði," segir Guðmundur Atli en í læknum er að finna staðbundinn urriða. "Fiskurinn þarna er styggur og áin er tær og falleg. En það eru staðir þarna sem ég veit hvar fiskurinn heldur sig. Þeir eru alltaf á sömu stöðunum en þú veður ekki beint á þá," segir Guðmundur Atli. En hvaða flugur ætlar hann að reyna í fyrstu veiði ársins. "Ætli ég noti ekki einhverjar púbur og prófi svo streamera í lokin."
Stangveiði Mest lesið Lifnar yfir bleikjuveiði í Vífilstaðavatni Veiði SVFR leitar að mönnum til nefndarstarfa Veiði Þrjú ný vötn fyrir Veiðifélaga Veiði Stórir urriðar í Laxárdalnum þrátt fyrir kulda Veiði Mikið af laxi í Langá Veiði Ágæt bleikjuveiði í Litluá Veiði Innsend frétt frá veiðihóp sem var koma úr Veiðivötnum Veiði Svona á að hamfletta rjúpurnar Veiði Fyrsti laxinn er mættur í Kjósina Veiði Aukin veiði fjölgar refum Veiði